Hönnun

Hönnun / Verkfræðiteikningar

Verkfræðistofa FHG eru viðurkenndir hönnuðir burðarþols og lagna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Við tökum að okkur hönnun fyrir íbúðarhús, atvinnuhúsnæði og mannvirki af ýmsum stærðum, hér á landi og erlendis. Við leggjum áherslu á hagkvæmar og vel ígrundaðar lausnir og á gott samstarf við arkitekta, verkkaupa og verktaka, frá fyrstu hugmynd til lokaúttektar.

Burðarþol

Við hönnum burðarvirki úr steinsteypu, stáli og timbri, ásamt undirstöðum. Hönnunin byggir á Eurocode-stöðlum og tekur mið af íslenskum aðstæðum, svo sem jarðskjálfta-, vind- og snjóálagi. Reynsla okkar af jarðtæknilegum mælingum, til dæmis plötuprófum og álagsprófun staura, nýtist til að tryggja traustar undirstöður.

Lagnir

Við hönnum neysluvatns-, hita- og frárennslislagnir fyrir nýbyggingar og endurbætur. Markmiðið er rekstraröruggt og orkusparandi kerfi sem auðvelt er að viðhalda.

Dæmi um verkefni

  • Flugstöðin í Kulusuk, Grænlandi
  • Þorláksgeisli 17, Reykjavík
  • Vindakór 2–8, Kópavogi

Hafðu samband í síma 566 7000 eða á firmapost@verkfraedi.net og fáðu tilboð í hönnun.